Fotbolti.net
20.05.26 - 13:33
Kári Snorrason

Neymar grét í marga klukkutíma eftir að hafa verið valinn

Neymar hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin ár.

Neymar hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin ár.

Canon

Mynd: EPA

Neymar var valinn í 26 manna hóp Brasilíu sem fer á komandi heimsmeistaramót.

Neymar er markahæsti leikmaður í sögu Brasilíu með 79 mörk í 128 leikjum, en hann hefur ekki spilað landsleik síðan 2023 sökum mikilla meiðsla.
Neymar fer með á HM - Svona er brasilíski hópurinn
TENGT EFNI

Neymar fer með á HM - Svona er brasilíski hópurinn

Í viðtali við samfélagsmiðla Santos sagði Neymar hafa horft á valið á hópnum í sjónvarpinu og þegar hann sá nafnið sitt tóku tilfinningarnar yfir.

„Ég grét í nokkra klukkustundir. Það var ekki auðvelt að komast þangað. Þegar nafnið mitt var kallað upp fann ég að það var þess virði að yfirstíga allt og halda áfram,“ sagði Neymar meðal annars.

Brasilía er með Marokkó, Skotlandi og Haítí í riðli á HM.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.