Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Dómarinn vildi ekki að við færum í undanúrslit"
Florentino Pérez hefur verið forseti Real Madrid síðan 2009 eftir upprunalega forsetatíð hans frá 2000 til 2006.
Florentino Pérez hefur verið forseti Real Madrid síðan 2009 eftir upprunalega forsetatíð hans frá 2000 til 2006.
Mynd: EPA
Kylian Mbappé biðlaði til Slavko Vincic dómara að gefa Camavinga ekki seinna gula spjaldið.
Kylian Mbappé biðlaði til Slavko Vincic dómara að gefa Camavinga ekki seinna gula spjaldið.
Mynd: EPA
Florentino Pérez, forseti Real Madrid, ræddi ýmislegt í sjónvarpsþætti El Chiringuito á dögunum.



Hann ræddi meðal annars þjálfaramál félagsins þar sem José Mourinho virðist vera tilbúinn til að taka við stjórn á Real Madrid í annað sinn á ferlinum. Xabi Alonso var ráðinn í fyrrasumar en fékk aðeins að vera rúmlega sex mánuði í starfi áður en hann var rekinn í janúar.

„José Mourinho hækkaði standardinn hjá okkur og eftir að hann fór unnum við Meistaradeildina 6 sinnum á 10 árum. Hann hjálpaði við stóra hugarfarsbreytingu innan félagsins og ég hef miklar mætur á honum. Það var ekki röng ákvörðun hjá okkur að ráða Xabi Alonso til starfa, hann kom inn á slæmum tímapunkti við erfiðar aðstæður. Hann fékk ekkert undirbúningstímabil og það hafði neikvæð áhrif," sagði Pérez og snéri sér svo að leikmannamálum.

„Auðvitað munum við kaupa nýja leikmenn í sumar. Við reynum alltaf að kaupa spennandi leikmenn þegar þeir eru í boði og þetta sumar verður ekki öðruvísi. Ég hef alltaf reynt að kaupa bestu leikmenn sem eru til. Ég fékk Luís Figo, Zinedine Zidane, brasilíska Ronaldo, David Beckham, Cristiano Ronaldo, Káka og Karim Benzema til félagsins.

„Auðvitað líkar mér við Lamine Yamal en við getum ekki keypt hann útaf því að samband okkar við Barcelona er gjörsamlega ónýtt. Ég vil ekki tengjast félagsliði sem mútaði dómurum í tvo áratugi. Ég vil sjá réttlætið sigra í Negreira dómsmálinu."


Pérez hefur miklar mætur á brasilíska kantmanninum Vinícius Júnior sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Real Madrid.

„Við erum ekki að flýta okkur að semja við Vinícius, við höfum allt tímabilið fyrir viðræður. Þið haldið að ég stjórni öllu hjá Real Madrid en það er ekki þannig, það er yfirmaður fótboltamála sem sér um þessa hluti. Vini er einn af bestu leikmönnum liðsins, hann vann síðustu Meistaradeild fyrir okkur. Kylian Mbappé er besti leikmaður liðsins. Hann er ótrúlegur markaskorari og er markahæstur í La Liga."

Pérez ræddi að lokum um 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Þar datt Real Madrid úr leik gegn FC Bayern og eins og vanalega kennir Pérez dómgæslunni um.

„Dómarinn vildi ekki að við færum í undanúrslitaleikinn. Hann gerði mistök og gaf Camavinga óvart seinna gula spjaldið, hann áttaði sig ekki á því að Camavinga væri á gulu spjaldi þegar hann tók ákvörðunina. Þetta var ekki viljaverk hjá dómaranum en samt stór mistök."


Eduardo Camavinga second yellow card vs Bayern Munich 86'
by
u/977x in
soccer

Slapp
banner
banner