Fotbolti.net
20.05.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Enn óljóst hvort ÍA fái undanþágu - Rosenörn kemur ekki

ÍA á leik á morgun.

ÍA á leik á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er enn ekki orðið ljóst hvort ÍA fái undanþágu frá KSÍ til að fá inn markvörð til félagsins á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar.

Árni meiddist á sunnudag og verður frá næstu 6-8 vikurnar vegna ristarbrots. Varamarkvörður ÍA, Isak Theodor Eidem, er fæddur 2009 og félagaskiptaglugginn er lokaður. Því hefur ÍA óskað eftir því frá KSÍ að fá inn markvörð utan glugga í neyðarskiptum.
Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum
TENGT EFNI

Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum

Í skriflegu svari við fyrirspurn Fótbolta.net segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, að málið sé í vinnslu og skýrist vonandi fljótlega.

Fótbolti.net sagði frá því fyrr í dag að ÍA hefði sett sig í samband við markvörðurinn Mathias Rosenörn sem er án félags eftir að hafa yfirgefið FH síðasta haust.

Rosenörn segir í svari við fyrirspurn Fótbolta.net að ÍA hafi sett sig í samband við sig en hann sé ekki á leið til félagsins. Hann og fjölskyldan búa í Danmörku, fjölskyldan sé í fyrsta sæti eftir fimm ár í Færeyjum og á Íslandi og hann sé ekki á faraldsfæti.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net kannaði ÍA einnig möguleikann á því að fá Sindra Kristin Ólafsson í sínar raðir.

ÍA á leik í Bestu deildinni á morgun gegn ÍBV. Sá leikur hefst klukkan 18:00 og fer fram á ELKEM-vellinum.
Rosenörn ekki á leið til ÍA.

Rosenörn ekki á leið til ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.