Fotbolti.net
20.05.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Komu auka myndavélum fyrir: Áhorfendum verður refsað

Komu auka myndavélum fyrir: Áhorfendum verður refsað
Canon

Mynd: EPA

Leeds United hefur lofað að bregðast harkalega við hómófóbískum söngvum sem heyrðust úr áhorfendapöllunum í naumum sigri liðsins gegn Brighton um helgina.
Félagið segist hafa komið auka myndavélum fyrir uppi í stúku til þess að geta greint betur hverjir tóku þátt í söngvunum.

„Við höfum ítrekað sagt að fordómafullir söngvar eiga ekki heima í fótbolta og við munum sjá til þess að viðkomandi aðilar sem tóku þátt í söngvunum komist ekki aftur á völlinn á næstunni," sagði í yfirlýsingu frá Leeds eftir leikinn.

Stuðningsmenn Brighton svöruðu hómófóbískum söngvum heimamanna með söngvum um Jimmy Savile, frægan barnaníðing frá Leeds.

„Félagið veit af Jimmy Savile söngvum andstæðinganna en þeir gefa okkar stuðningsmönnum ekki leyfi til að vera með fordóma eða syngja hómófóbíska söngva."

Enska fótboltasambandið mun líklega sekta Leeds fyrir söngvana hómófóbísku eins og gerðist í síðasta heimaleik liðsins gegn Brighton fyrir þremur árum síðan. Leeds fékk þá 150 þúsund punda sekt fyrir hómófóbíska söngva stuðningsmanna.

Í Brighton er eitt stærsta LGBTQ+ samfélag Bretlands og hafa stuðningsmenn andstæðinga þeirra verið iðnir við að syngja hómófóbíska söngva þegar Brighton kemur í heimsókn.

Hómófóbískir söngvar eru ólöglegir í Bretlandi og flokkaðir sem hatursglæpir. Því geta áhorfendur sem nást á myndband við að taka þátt í söngvunum hlotið dóma.
Komu auka myndavélum fyrir: Áhorfendum verður refsað
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.