Fotbolti.net
20.05.26 - 12:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sveindís frá í kvöld - Verður hún í landsliðshópnum?

Sveindís frá í kvöld - Verður hún í landsliðshópnum?
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
Sveindís Jane Jónsdóttir er skráð ótiltæk vegna meiðsla á fæti fyrir leik Angel City og Kansas City Current í NWSL deildinni. Leikurinn fer fram í Los Angeles í kvöld og hefst klukkan 02:00 að íslenskum tíma.

Sveindís lék gegn San Diego fyrir tíu dögum síðan en var frá gegn Portland Thorns um helgina.
Það verður fróðlegt að sjá hvort Sveindís verði í landsliðshópnum sem verður opinberaður á morgun. Þorsteinn Halldórsson er að velja hóp fyrir leiki gegn Úkraínu (úti) og Spáni (heima) í undankeppni HM.

Hópurinn verður opinberaður á morgun og mun Þorsteinn sitja fyrir svörum á fréttamannafundi í kjölfarið, klukkan 13:15.

Sveindís hefur verið lykilmaður í landsliðinu síðustu ár, hefur spilað 60 leiki og skorað 16 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.