Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í evrópska kvennaboltanum þar sem Guðrún Arnardóttir skoraði það sem reyndist sigurmark Hammarby.
Guðrún skoraði seinna markið í 2-1 sigri á heimavelli gegn Malmö og deilir Hammarby toppsæti sænsku deildarinnar með Íslendingaliði Häcken. Bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og þau mættust á dögunum í úrslitaleikjum Evrópukeppni kvenna, þar sem Häcken hafði að lokum betur.
Häcken lenti undir snemma leiks en tókst að leggja Växjö að velli með tvo Íslendinga í byrjunarliðinu, lokatölur 4-2. Fanney Inga Birkisdóttir er markvörður liðsins og lék hin 18 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir allan leikinn.
Hammarby er með ellefu mörk í plús eftir fimm umferðir og trónir því á toppi deildarinnar. Häcken er með átta mörk í plús.
Diljá Ýr Zomers átti þá stoðsendingu í þægilegum sigri Brann í 16-liða úrslitum norska bikarsins á meðan Rosenborg steinlá gegn Arna-Björnar. Selma Sól Magnúsdóttir sneri aftur á völlinn með Rosenborg eftir meiðsli á dögunum.
Sædís Rún Heiðarsdóttir var að lokum í byrjunarliði Vålerenga sem sló Tromsö úr leik á útivelli.
Hammarby 2 - 1 Malmö
1-0 S. Rehnberg ('17)
2-0 Guðrún Arnardóttir ('58)
2-1 M. Ivanovic ('87)
Hacken 4 - 2 Vaxjo
Fana 0 - 3 Brann
Arna-Bjornar 4 - 0 Rosenborg
Tromso 1 - 3 Valerenga


