Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Watford í viðræðum við þjálfara Gísla Gotta
Mynd: EPA
Enska Championship félagið Watford er í leit að nýjum stjóra og hefur hafið viðræður við Niels Frederiksen, danskan þjálfara Póllandsmeistara Lech Poznan.

55 ára gamall Frederiksen hefur unnið pólsku deildina tvö ár í röð eftir að hafa áður þjálfað Bröndby, Esbjerg, Lyngby og danska U21 landsliðið.

Watford var í toppbaráttu Championship deildarinnar á fyrri hluta tímabils undir stjórn Ed Still en gengi liðsins snarversnaði eftir áramót. Watford vann ekki nema þrjá leiki af síðustu 21 og fór úr því að vera í toppbaráttu niður í neðri hluta deildarinnar, þar sem liðið endaði að lokum með 57 stig úr 46 leikjum.

Það verður mikil pressa á næsta stjóra Watford þar sem markmið félagsins er að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir fimm ára fjarveru.

Þess má geta að U21 landsliðsmaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson er leikmaður Lech Poznan og kom með beinum hætti að 4 mörkum í 13 leikjum á nýliðnu deildartímabili.

Hann fékk góðan spiltíma á byrjun tímabils en datt svo úr liðinu og virtist vera að vinna sér aftur inn sæti þegar hann meiddist snemma í apríl.

   16.05.2026 20:52
Gísli Gotti pólskur meistari með Lech Poznan

Slapp
banner
banner