Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 20. maí 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
De Zerbi: Heiður og stolt félagsins er undir
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham svaraði spurningum eftir tap gegn Chelsea í mikilvægum Lundúnaslag í gærkvöldi.

Tottenham gat forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni með jafntefli eða sigri en fer þess í stað inn í lokaumferðina í fallhættu. Tottenham nægir jafntefli á heimavelli gegn Everton til að forðast fall.

„Við áttum góðan leik, úrslitin réðust af smáatriðum. Við klúðruðum færi snemma leiks og svo skoraði (Enzo) Fernández af 30 metra færi. Við vörðumst ekki nægilega vel í fyrra markinu og svo gáfum við þeim boltann í seinna markinu," sagði De Zerbi en Randal Kolo Muani átti skelfilega sendingu sem endaði með marki frá Andrey Santos.

„(Mathys) Tel og Richarlison fengu góð færi til að skora og við vorum óheppnir að fá ekki stig úr þessum leik. Við erum með 8 stig í 6 leikjum frá því að ég tók við og við höfum verið óheppnir með úrslit.

„Ég hef fulla trú á því að við séum með gæðin sem þarf til að forðast fall. Síðustu 20 mínúturnar spiluðum við af meiri gæðum útaf því að James Maddison er ótrúlegur fótboltamaður en hann getur ekki spilað meira en 20 til 25 mínútur á leik eins og staðan er í dag.

„Við eigum úrslitaleik næsta sunnudag og öll okkar einbeiting fer í hann. Á næstu leiktíð getum við barist um titla en á sunnudaginn spilum við mikilvægari leik. Heiður og stolt félagsins er undir. Það er hægt að vinna og tapa titlum og ekkert breytist í lífinu manns, en maður má ekki tapa heiðrinu og stoltinu. Tottenham vann úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fyrra en næsti leikur er mikilvægari."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner
banner