Fotbolti.net
20.05.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kroupi í sögubækurnar

Kroupi í sögubækurnar
Canon

Mynd: EPA

Franski táningurinn Eli Junior Kroupi hefur komið gríðarlega sterkur inn í ensku úrvalsdeildina.
Hann er kominn með 13 mörk í 32 leikjum á sínu fyrsta úrvalsdeildartímabili og þar af hafa fimm komið í síðustu sjö leikjum.

Kroupi skoraði eina mark Bournemouth í 1-1 jafntefli gegn Manchester City í gærkvöldi sem gerði út um titilvonir Man City og hélt veikri Meistaradeildarvon á lífi fyrir Bournemouth.

Þrettán mörk frá Kroupi þýða að hann er orðinn markahæsti táningur, sem jafnframt er nýliði í deildinni, frá stofnun úrvalsdeildarinnar.

Nafnarnir Robbie Fowler og Robbie Keane deildu þessu nýliðameti með 12 mörk hvor á sínu fyrsta tímabili sem táningar í ensku úrvalsdeildinni. Fowler skoraði mörkin tímabilið 1993-94 og Keane 1999-00.

Kroupi er þar að auki fyrsti táningur í sögu úrvalsdeildarinnar til að skora gegn þremur bestu liðum deildartímabilsins eftir að hann skoraði í leikjum gegn Arsenal, Manchester City og Manchester United.

Stjarna Bournemouth ekki til sölu
TENGT EFNI

Stjarna Bournemouth ekki til sölu

Kroupi í sögubækurnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.