Það fóru fjórir leikir fram samtímis í Lengjudeild kvenna í kvöld og voru ellefu mörk skoruð.
Haukar tróna áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir frábæran sigur á útivelli gegn HK. Halla Þórdís Svansdóttir var hetja Hauka þar sem hún skoraði bæði mörk liðsins í 1-2 sigri.
Haukar eru í efsta sæti á markatölu þar sem KR er einnig með fullt hús stiga eftir mikinn baráttusigur gegn ÍA.
KR lenti undir í tvígang á heimavelli en tókst að svara með jöfnunarmarki í bæði skiptin áður en Katla Guðmundsdóttir setti sigurmark á 77. mínútu.
Bæði lið eiga 9 stig eftir 3 umferðir.
Völsungur náði í sín fyrstu stig í Norðurlandsslag á Sauðárkróki. Þar var hin bráðefnilega Ísabella Anna Kjartansdóttir atkvæðamest með tvennu fyrir Húsvíkinga og situr Tindastóll eftir án stiga.
Að lokum gerðu Keflavík og Selfoss markalaust jafntefli. Liðin sitja jöfn um miðja deild með 4 stig.
HK 1 - 2 Haukar
0-1 Halla Þórdís Svansdóttir ('7 )
0-2 Halla Þórdís Svansdóttir ('68 )
1-2 Alma Mathiesen ('73 )
KR 3 - 2 ÍA
0-1 Erna Björt Elíasdóttir ('31, víti)
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('44 )
1-2 Alexa Maletis ('56 )
2-2 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('71 )
3-2 Katla Guðmundsdóttir ('77 )
Tindastóll 0 - 3 Völsungur
0-1 Ísey Ragnarsdóttir ('20 )
0-2 Ísabella Anna Kjartansdóttir ('50 )
0-3 Ísabella Anna Kjartansdóttir ('96 )
Keflavík 0 - 0 Selfoss

