Fotbolti.net
20.05.26 - 15:50
Kári Snorrason

Ágúst hélt að hann væri að fara til Póllands - „Veit ekki hvernig þetta gerðist“

Ágúst var nálægt því að ganga í raðir Rakow.

Ágúst var nálægt því að ganga í raðir Rakow.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, er einn eftirsóttasti leikmaður Bestu deildarinnar. Hann var nálægt því að ganga í raðir Rakow í Póllandi í vetur en skiptin féllu upp fyrir.

Greint var frá því að pólska félagið hafi verið reiðubúið að greiða um 80 milljónir fyrir Ágúst.

Ágúst var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á síðastliðinn laugardag. Hann var spurður hversu nálægt hann var því að ganga í raðir Rakow.
Pólskt félag í viðræðum við Breiðablik
TENGT EFNI

Pólskt félag í viðræðum við Breiðablik

„Ég hélt eiginlega sjálfur að þetta væri klárt. Ég veit ekki hvernig það gerðist en Pólverjarnir hættu bara við á síðustu stundu. Það var ekkert sem ég gat gert í því,“ sagði Ágúst

Var hausinn kominn til Póllands?
„Hausinn var ekki alveg kominn þangað en auðvitað þegar svona gott lið eins og Rakow er að reyna fá mig. Maður var alveg búinn að skoða liðið og svona.

Hausinn var alltaf á Blikum og síðan myndi maður sjá til hvað myndi gerast og ég tæki lokaákvörðun um að fara eða ekki. Hausinn var ekkert kominn út.“


Veit að þetta mun koma
Eru einhver lið búin að hafa samband núna í upphafi sumars?
„Þú verður eiginlega að spyrja umboðsmanninn minn. Ég er bara að spila næsta leik og þá kemur vonandi gott tilboð.“

„Ég veit að þetta mun koma. Þetta er bara spurning um að mæta á æfingar og leggja sig hundrað prósent fram. Ég er það góður í fótbolta að tækifærin koma alltaf,“ sagði Ágúst að lokum.
Í Sambandsdeildinni í vetur.

Í Sambandsdeildinni í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.