Fotbolti.net
20.05.26 - 08:15
Auglýsingar

Viltu taka þátt í að fjalla um íslenskan fótbolta?

Viltu taka þátt í að fjalla um íslenskan fótbolta?
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Fótbolti.net leitar að áhugasömum aðilum til að koma til liðs við breiðan hóp íþróttafréttamanna sem fjallar daglega um fótbolta.

Við leitum eftir fólki sem hefur ástríðu fyrir fótbolta og hefur áhuga á því að fjalla fyrst og fremst um íslenskan fótbolta.

Við viljum endilega heyra frá sem flestum og þá sérstaklega á Suðurnesjum, Akureyri og Akranesi.

Stelpur eru einnig sérstaklega hvattar til að senda okkur línu en í dag starfa þrjár stelpur hjá Fótbolti.net sem blaðamenn.
Meðal þess sem við erum að leitast eftir er fólk í umfjallanir um leiki í íslenska boltanum; textalýsingar og viðtöl.

Fótbolti.net hefur árum saman verið ein mest heimsótta vefsíða landins samkvæmt vefmælingum Gallups.

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband gegnum [email protected].
Mynd: Fótbolti.net
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.