Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
   lau 01. júní 2019 19:34
Mist Rúnarsdóttir
Steini Halldórs: Öll slútt voru léleg
Kvenaboltinn
Bikarmeistararnir eru úr leik eftir tap í Árbænum
Bikarmeistararnir eru úr leik eftir tap í Árbænum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er fúlt. Að fá á sig eitt skot á markið og klikka á endalaust af dauðafærum og möguleikum á að skapa dauðafæri. Við vorum bara ekki á okkar degi í að slútta,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Blika, er hann var inntur eftir viðbrögðum eftir 1-0 tap gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti tapleikur Breiðabliks í sumar og ríkjandi bikarmeistarar úr leik í keppninni.

Blikum hefur gengið vel að skora það sem af er sumri en þrátt fyrir að hafa verið mun meira með boltann og náð að skapa sér þónokkur færi gekk þeim grænklæddu illa fyrir framan Fylkismarkið.

„Öll slútt voru léleg nema slúttin sem fóru í markið og þá var alltaf rangstaða. Við erum að fá svakaleg færi í þessum leik. Komumst einar á móti markmanni og það er bara skotið beint í hana. Hún þurfti ekki einu sinni að skutla sér. Það er bara fúlt. Mér fannst leikmenn vera svolítið off í færum,“ sagði Steini sem vildi þó ekki meina að liðið sitt hefði vanmetið mótherjana.

„Mér fannst við vera að yfirspila þær allan leikinn. Við héldum boltanum ágætlega í fyrri hálfleik og sköpuðum fín færi. Mér fannst þetta ekki vera vanmat. Þetta er einn af þessum leikjum sem maður lendir í þar sem að hlutirnir ganga bara ekki upp fyrir framan markið. Það getur alltaf komið fyrir.“

Hægt er að sjá allt viðtalið við Steina í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner