KR vann endurkomusigur gegn Vestra í dag. Fótbolti.net ræddi við Aron Þórð Albertsson, leikmann KR, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KR 2 - 1 Vestri
„Loksins datt sigurinn. Mér fannst við vera búnir að vera góðir í síðustu leikjum. Mér fannst við vera betri frá fyrstu mínútu, það var kannski á 70. mínútu sem þetta fór að gliðna og þá komu opnanir sem við fórum að nýta okkur," sagði Aron Þórður.
KR var meira með boltann í fyrri hálfleik en náði lítið að skapa sér. Vestramenn eru þekktir fyrir þéttann og góðann varnarleik.
„Þetta er fótboltinn sem þeir vilja spila. Þeir vilja verja markið sitt og eru góðir í því. Þetta er kannski ekki skemmtilegt fyrir augað en þeir ná árangri, fótboltinn vann í dag og við erum ánæðgir með það," sagði Aron.
Það var umdeilt atvik í seinni hálfleik þegar Daði Berg Jónsson skoraði í annað sinn en markið var dæmt af vegna þess að dómararnir töldu að Aron Þórður hafi gert Daða rangstæðan.
„Það getur vel verið að ég hafi spilað hann réttstæðan. Mér finnst það ekki skipta máli. Við hefðum komið til baka og klárað þennan leik hvort sem við hefðum verið 1-0 eða 2-0 undir, og klárað þennan leik. Þeir voru algjörlega búnir á sjötugustu og eftir það gengum við á lagið og keyrðum yfir þá," sagði Aron.
Athugasemdir