Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 18:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sævar ákveðinn: Það hefur aldrei komið upp hjá okkur
Framkvæmdastjóri KA.
Framkvæmdastjóri KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fín frammistaða hjá KA í gær.
Fín frammistaða hjá KA í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Eftir 2-4 tap á heimavelli gegn Fram í Mjólkurbikarnum fyrir rúmum tveimur vikum síðan var útlitið svart hjá KA. Vörn liðsins var hriplek og áran yfir liðinu slæm.

KA menn náðu í kjölfarið að taka sig saman í andlitinu, byrjuðu á því að þétta varnarleikinn sinn og það eru jákvæð teikn á lofti með sóknarleikinn.

Fótbolti.net ræddi við framkvæmdastjóra KA, Sævar Pétursson, um breytinguna á liðinu.

„Ég er ánægður með svar liðsins, menn hafa aðeins farið aftur í þau grunngildi sem hafa skilað okkur árangri síðustu ár; vera þéttari og spila sterkan varnarleik sem lið. Tveir sigrar, tvö jafntefli og eingöngu tvö mörk fengin á okkur í síðustu fjórum leikjum. Við þurfum að vera með þessi grunngildi alveg á hreinu til að ná árangri í þessari deild. Þau hafa verið góð í síðustu leikjum eftir erfiða byrjun í mótinu," segir Sævar.

Voru einhver samtöl um að mögulega gera einhverjar breytingar eftir tapið gegn Fram?

„Aldrei," segir Sævar ákveðinn. „Það hefur aldrei komið upp hjá okkur. Við höfum fulla trú, bæði á hópnum og þjálfarateyminu. Það hefur aldrei verið neitt í umræðunni hjá okkur. Umræðan hefur bara verið hvað við sem stöndum að liðinu og sem hópur getum gert betur til þess að ná í úrslit. Það hefur virkað vel síðustu vikur. Við reynum að efla umgjörðina og bæta í það sem við getum gert betur."

Hvernig var tilfinningin eftir leikinn í gær?

„Þetta var súrsætt. Stjarnan var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en mér fannst við vera með öll völd á vellinum í seinni hálfleik. Mér fannst bara spurning hvenær við myndum skora og hvort við myndum skora fleiri en eitt. Auðvitað var stórt atriði sem Elli (dómari) missir af sem hefði gerbreytt stöðunni, réttur dómur hefði verið víti og rautt. Þá var ennþá hálftími eftir af leiknum. En eins og góður maður sagði, jafnast þetta ekki allt út einhvern veginn? Við tökum því bara, Elli gerir bara mistök og áfram gakk. Það jákvæðasta hjá okkur er að við erum aðeins að finna taktinn í síðustu leikjum. Menn fara í smá pásu núna, frí, og koma svo vonandi tvíefldir til baka þegar mótið byrjar aftur," segir Sævar.
Athugasemdir
banner
banner