
Enska kvennalandsliðið er í harðri baráttu um að komast í undanúrslit Þjóðadeildarinnar.
Liðið er tveimur stigum á eftir toppliði Spánar fyrir lokaumferðina en liðin mætast þar í kvöld.
Liðið er tveimur stigum á eftir toppliði Spánar fyrir lokaumferðina en liðin mætast þar í kvöld.
Það voru óvæntar fréttir þegar markvörðurinn Mary Earps tilkynnti á dögunum að hún væri hætt að spila með landsliðinu. Þá var það tilkynnt að Millie Bright, leikmaður Chelsea, ákvað að draga sig úr landsliðshópnum.
„Ég tel að ég sé búin á því andlega og líkamlega. Þess vegna er ég ekki í hópnum. Það var erfið ákvörðun en stundum verður maður að taka tíima fyrir sjálfan sig. Maður þarf að meta sjálfan sig, andlega heilsu og líkamann," sagði Bright.
Athugasemdir