Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
Hákon tekur stöðuna eftir verkefnið - „Auðvitað vil ég spila hverja helgi"
Bjarni mjög ánægður hjá Val - „Var mjög hreinskilinn að ég væri ekki að fara neitt"
Túfa aldrei hugsað um töfluna - „Mikilvægast að halda stöðugleika"
Rúnar tekur tapið á sig - „Stundum er þetta bara þjálfaranum að kenna frekar en leikmönnum"
Guðný: Þetta lítur ótrúlega vel út
Sandra María: Góða íslenska veðrið vinnur með okkur
„Skrítið ef ég stæði hérna og segði að við ættum ekki möguleika"
Hildur Antons: Spenntar að fá að vígja grasið
Vicente: Við Alex ræddum þetta fyrir leik
Ingvar Jóns heiðarlegur: Höfum ekkert verið frábærir í sumar
Láki: Þetta mun rúlla bara þessa fríviku
Anton Logi spilaði miðvörð: Forréttindi að spila með Viktori
Víkingar komu Dóra gríðarlega á óvart - „Hentaði ekki vel á móti okkur"
Sölvi svekktur: Veit ekki hvað ég á að segja
Sverrir Páll: Þetta var svona Zlatan mark
Maggi Már: Jú jú, ef Heimir vill meina það
Heimir: Þeir gerðu vel í að hægja á tempói og drepa leikinn
Jökull: Get ekki betur séð en að dómararnir láti það hafa áhrif á sig
Haddi: Ef það er rétt sem þú segir þá því miður var það vitlaus ákvörðun
Ívar Örn: Þeir missa þetta upp í sína eigin vitleysu
   sun 01. júní 2025 23:01
Sölvi Haraldsson
Ingvar Jóns heiðarlegur: Höfum ekkert verið frábærir í sumar
Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var bara soft. Soft í þessum mörkum sem þeir skora. Við náðum okkur ekki alveg í gang og vorum undir í baráttunni sem er ekki góður sviti þegar við mætum í svona leiki.“ sagði Ingvar Jónsson, markvörður Víkinga, eftir 3-1 tap á Kópavogsvelli í dag.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  1 Víkingur R.

Ingvar segir Blika hafa verið grimmari sem er oft nóg til þess að vinna þessa viðureign.

„Þeri voru bara grimmari og oft sker það út um sigurvegarann í leik Víkings og Breiðabliks, hvor er grimmari og hvor berst meira um seinni boltana. Þeir voru bara ákveðnari og nýttu sín færi vel og gerðu okkur erfitt fyrir.“

Hvar fór leikurinn og hvað réði úrslitunum að mati Ingvars?

„Í þessu þriðja marki en mér fannst þetta vera bakhrinding á Gunnar, það dregur svolítið kraftinn úr okkur. Mér fannst við byrja mjög sterkt í seinni hálfleik við vorum bara að bíða eftir að ná marki á þá og við vorum með fulla trú á því að geta snúið þessu við. Erfitt eftir þriðja markið og mér fannst það púra bakhrinding. Hann fer augljóslega í bakið á honum þannig það er nóg til að ná jafnvæginu úr honum. Ég skil ekki afhverju hann dæmir ekki en þá var þetta erfitt.“

Ingvar segir Víkinga hafa verið soft í dag en afhverju eru þeir soft í dag á móti Breiðablik?

„Góð spurning. Það vantaði eitthvað upp á hjá okkur. Það vantaði sterka menn í okkar lið í dag sem eru þessir orkuboltar og sterkir í návígin. Það var bara eitthvað off, við vorum bara undir í baráttunni sem er ekki góðs viti. Mér leið í seinni hálfleik. Mér leið eins og við værum að fara að setja nokkur á þá þegar fyrsta markið myndi koma, það kom bara aðeins of seint.“

Ingvar segir byrjun Víkinga ekki hafa verið nægilega góða þrátt fyrir að liðið sé á toppi deildarinnar.

„Við áttum ekkert sjö stiga forskot skilið með þessari frammistöðu. Við erum ennþá á toppnum eins og þú segir og í sannleika sagt höfum við verið ekkert frábærir í sumar. Við erum búnir að vera dálítið í þriðja og fjórða gír. Við vitum allir að við erum betri og eigum meira inni. Núna þurfa menn að taka því rólega í fríinu og mæta svo tvíefldir til leiks og keyra þetta í gang.“ sagði Ingvar Jónsson, markvörður Víkinga, að lokum eftir 3-1 tap á Kópavogsvelli í kvöld.

Viðtalið við Ingvar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir