Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   mán 02. júní 2025 22:53
Anton Freyr Jónsson
Bjarni mjög ánægður hjá Val - „Var mjög hreinskilinn að ég væri ekki að fara neitt"
Bjarni var frábær í kvöld
Bjarni var frábær í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður vel. Vindurinn hafði auðvitað áhrif á þennan leik en mér fannst við spila fyrri hálfleikinn vel á móti vindi. Seinni hálfleikurinn var ekki nógu góður með vindi en við sigldum þessum heim og það er það eina sem skiptir máli." sagði Bjarni Mark Duffield leikmaður Vals eftir 2-1 sigurinn á Fram í Bestu deildinni í kvöld


Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Fram

Frederick Schram lagði upp eitt mark sem er ekki algengt að markverðir leggja upp. Bjarni Mark Duffield lagði einnig upp fyrsta markið á Patrick Pedersen

Bjarni Mark Duffield hefur gengið í gegnum margt á síðusta ári en hann var orðaður frá Val í vetur og var Bjarni spurður hvernig síðustu mánuðir hafa verið

,,Ég var allan tímann rólegur. Ég, Tufa og leikmennirnir í liðinu vissum eiginlega allan tímann að ég væri ekki að fara neitt en það er auðvitað gaman þegar það kemur áhugi og maður íhugar það en einhvern veginn innst inni var ég alltaf að fara vera í Val, ég er mjög ánægður í Val. Klúbburinn er geggjaður, Tufa var mjög hreinskilinn við mig alveg frá byrjun þegar fyrsta tilboð kom að ég væri ekki að fara neitt. Ég var bara ánægður með það og það sama og ég sagði við Val, mér er alveg sama hver labbar inn um dyrnar, ég er alltaf klár í samkeppni og ég vinn hana bara. Svo þarf maður bara að sjá hvort maður geri það eða ekki."

„Það er bara undir mér komið að takast á við það og þegar maður er í eins stórum klúbb og Val að þá ertu ekert með neitt gefins byrjunarliðssæti og ég var bara alltaf klár í alvöru samkeppni og ég er bara ánægður með hvernig þetta er að þróast." 


Slapp
banner
banner
banner