Theo Hernandez, bakvörður AC Milan, virðist ekki vera spenntur fyrir því að fara til Sádí-Arabíu en Al-Hilal hefur áhuga á honum.
Milan og Al-Hilal hafa verið í viðræðum undanfarið sem ganga vel.
Milan og Al-Hilal hafa verið í viðræðum undanfarið sem ganga vel.
Fabrizio Romano greinir hins vegar frá því að leikmaðurinn sjálfur hafi ekki náð samkomulagi um að ganga til lliðs við félagið.
Talið er að Milan hafi samþykkt 35 milljón evra tilboð frá Al-Hilal. Hernandez er 27 ára gamall vinstri bakvörður en samningur hans við ítalska félagið rennur út næsta sumar.
Athugasemdir