Færist nær því að yfirgefa Man Utd - Barca ætlar að kaupa Rashford - Newcastle hefur áhuga á Ederson
Hlín Eiríks: Kíktum í balletkennslu í gær í staðinn fyrir æfingu
Steini: Hún er bara orðin gömul og þreytt
Thelma Karen: Gærdagurinn eitt mesta bull sem ég hef lent í á ævinni
Emilía Kiær: Geggjaður bónus að geta fengið sitt fyrsta landsliðsmark
Birnir Snær: Það er alvöru framleiðsla í Garðabænum
Sjáðu það helsta úr ítalska: Napoli fór á toppinn og Albert skoraði
Sjáðu það helsta úr spænska: Real Madrid vann El Clasico
Ragnar Bragi: Sýnir að klúbbnum sé alvara
Heimir setur titlasöfnun til hliðar: Núna er að búa til eitthvað
Jökull: Endar ekki í efstu þremur nema hafa unnið fyrir því
Örvar tvöfaldaði markafjölda sinn: Ég var óheppinn þá
Höskuldur: Hefur verið geðshræringavika
Ólafur Ingi: Eins og þú sérð þá er þetta frábært lið
Pablo Punyed um framtíðina: Það kemur í ljós
Matti Villa: Geggjaður endir á frábæru tímabili og mínum ferli
Sölvi um Pablo og Matta Villa: Þetta eru algjörir sigurvegarar
Túfa um Val: Miðað við allt sem ég er búinn að gera á ég þetta ekki skilið
Aron Sig stendur við ummæli sín: Sjá allir að við erum að fara taka yfir
Elmar Atli sár og svekktur: Að taka þessa ákvörðun í þessari stöðu er óskiljanlegt
Var afskaplega drjúgur fyrir KR í úrslitaleikjunum
   sun 01. júní 2025 21:30
Gunnar Bjartur Huginsson
Maggi Már: Jú jú, ef Heimir vill meina það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst þetta vera sanngjörn niðurstaða. Mér fannst vera fá færi í þessum leik, við vörðumst frábærlega allan leikinn og það var kannski lykillinn að þessu. Við tökum þetta stig og höldum áfram," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 0-0 jafntefli gegn FH á Kaplakrikavelli í kvöld. 

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði að Aftureldingu hefði tekist vel að drepa tempóið í leiknum.


Lestu um leikinn: FH 0 -  0 Afturelding

„Það var svo sem ekki ætlunin. Við vildum hafa tempó í leiknum en það var kannski bara á ákveðnum augnablikum, þegar við vorum að kasta þessum löngu innköstum inn í teiginn. Það tekur tíma að koma mönnum inn í teiginn. Jú, jú ef Heimir vill meina það, þá fór svo sem alveg tími í þessi löngu innköst."

Nýliðarnir úr Mosfellsbæ sitja í 10. sæti deildarinnar með 11 stig. Nú er landsleikjahlé að skella á og fá liðin tækifæri, til þess að skerpa á leik sínum. 

„Þetta er svona allt í lagi. Þetta er búið að vera upp og niður hjá okkur. 11 stig í 10 leikjum er ágætt en við viljum meira og munum gefa í eftir landsleikjahlé."

Viðtalið má nálgast í heild sinni í spilaranum að ofan.


Athugasemdir
banner
banner