Everton efur áhuga á því að fá vængmann Liverpool, Ben Doak, í sínar raðir.
Þessi 19 ára vængmaður heillaði á síðasta tímabili en hann var á láni hjá Middlesbrough í Championship deildinni.
Þessi 19 ára vængmaður heillaði á síðasta tímabili en hann var á láni hjá Middlesbrough í Championship deildinni.
Liverpool hafnaði fyrirspurnum frá Ipswich og Crystal Palace í Doak í janúar.
Liverpool vildi frekar hafa Doak áfram á láni hja Boro og að hann myndi þróa sinn leik áfram með það fyrir augum að hann gæti komið inn í hópinn hjá Liverpool í sumar.
Doak er skoskur landsliðsmaður, á að baki sex A-landsleiki. Hann misti af síðustu þremur mánuðum tímabilsins vegna meiðsla aftan í læri. Í 24 leikjum á tímabilinu lagði hann upp sjö mörk og skoraði þrjú mörk.
Athugasemdir