Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 16:51
Haraldur Örn Haraldsson
„Við þurfum að elska íslenskt veður og njóta þess að spila í því"
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland mætir Frakklandi á morgun í loka leik liðsins í Þjóðadeild kvenna. Þorsteinn Halldórsson þjálfari liðsins sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.


„Við þurfum að eiga góðan leik á öllum sviðum, spila vel varnarlega og loka á þær, og svo bara nýta færin sem við fáum," sagði Þorsteinn að væri lykillinn að því að ná í sigur á morgun.

Valið í franska landsliðið vakti þónokkra athygli þar sem mikið af þeirra lykil leikmönnum voru ekki valin.

„Frakkar hafa úr fullt af leikmönnum að velja og eru alltaf að koma með nýja og góða leikmenn. Að sjálfsögðu eru einhverjar breytingar sem eiga sér stað í leik liðsins við það að það verða svona margar breytingar. Svo vitum við í sjálfu sér ekkert hvernig þær koma til með að stilla upp. Þær eru búnar að vinna riðilinn og allt það, og hvernig þær leggja leikinn upp þegar þær mæta í íslenskt rok, hvernig leikmenn koma til með að spila þennan leik. Þá getur það hjálpað til að góðir leikmenn séu ekki með en ég held að leikurinn hjá þeim snúist um með hvernig hugarfar þær mæta með inn í leikinn við íslenskar aðstæður," sagði Þorsteinn.

Það er spáð miklu hvassviðri á morgun þegar leikurinn á sér stað en það er eitthvað sem íslenska liðið þekkir vel.

„Við þekkjum þetta og þær eru vanar að spila í íslensku veðri. Við erum ekkert sérstaklega búin að fara yfir það nákvæmlega, við ræðum það aðeins á fundinum í kvöld. Við bara erum vön þessu og þetta snýst bara um að við þurfum að elska íslenskt veður og njóta þess að spila í því. Vera ekkert að láta einhverjar aðstæður sem við getum ekki stjórnað trufla okkur," Sagði Þorsteinn en aðstæðurnar gætu verið íslenska liðinu í hag.

„Ég held klárlega, miðað við að fyrsta frétt á miðlunum er 20 stiga hita breyting og mæta svo í íslenskt rok. Það var fyrsta fréttin þeirra þegar þær lentu hérna. Það segir kannski svolítið margt um franska liðið."



Athugasemdir
banner
banner