Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbeumo vill fara til Man Utd
Mynd: EPA
Bryan Mbeumo hefur ákveðið að hann vilji ganga til liðs við Man Utd en þetta kemur fram á The Athletic. Félagið mun hefja viðræður við Brentford um kaup á framherjanum.

Mbeumo er 25 ára og á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Breentford. Hann átti sitt besta tímabil á nýliðnu tímabili með Brentford en hann skoraði 20 mörk og lagði upp átta.

Félög á borð við Arsenal, Newcastle og Tottenham hafa sýnt honum áhuga en Mbeumo vill fara til Man Utd.

Mbeumo er landsliðsmaður Kamerún en hann gekk til liðs við Brentford frá franska liðinu Troyes árið 2019 og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni tímabilið 2020-2021.

Man Utd er þegar byrjað að styrkja sig eftir vonbrigðatímabil en Matheus Cunha gekk til liðs við félagið frá Wolves.
Athugasemdir