Liam Delap, framherji Ipswich, er á leið til Chelsea en hann er í læknisskoðun hjá félaginu.
Delap er 22 ára gamall en hann gekk til liðs við Ipswich frá Man City síðasta sumar.
Hann lék 40 leiki á nýliðnu tímabili og skoraði 12 mörk en öll mörkin komu í 37 leikjum í úrvalsdeildinni þar sem Ipswich féll.
Chelsea borgar 30 milljónir punda fyrir hann en félagið vill að hann spili með liðinu á HM félagsliða í stað þess að fara á EM með U21 landsliði Englands.
Athugasemdir