Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 10:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reynir Man Utd við leikmann City? - Tveir í skiptum fyrir Wirtz
Powerade
James McAtee og Erling Haaland.
James McAtee og Erling Haaland.
Mynd: EPA
Partey er að verða samningslaus.
Partey er að verða samningslaus.
Mynd: EPA
City sterklega orðað við Cherki.
City sterklega orðað við Cherki.
Mynd: EPA
Barcelona er í viðræðum að fá Thomas Partey í sínar ræðir, Liverpool er tilbúið að bjóða í Milos Kerkez og Everton er með auga á Matt O'Riley. Þetta og svo miklu fleira í slúðurpakka dagsins, BBC tekur saman helsta slúðrið sem er í boði Powerade.



Barcelona hefur hafið viðræður við Thomas Partey (31) um möguleg félagaskipti frá Arsenal til Barcelona en miðjumaðurinn verður samningslaus í lok mánaðar. (Sun)

Liverpool er að undirbúa formlegt tilboð í Milos Kerkez (21) vinstri bakvörð Bournemouth. Kerkez er klár í að fara til Liverpool og kostar rúmlega 40 milljónir punda. (GiveMeSport)

Liverpool hefur mislukkast í tveimur tilraunum að krækja í Florian Wirtz (22) frá Leverkusen. Liverpool gæti boðið Harvey Elliott (22) og Jarrell Quansah (22) sem hluta af skiptunum. (Kicker)

Man City hefur hafið viðræður við Lyon um kaup miðjumanninum Rayan Cherki (21). (Mail)

Man City ætlar ekki að vera með James McAtee (22) í hópnum fyrir HM félagsliða. Hann gæti farið á lokamót U21 landsliða eða þá að grannarnir í Man Utd reyni að kaupa hann. (Mirror)

Liam Delap (22) hefur klárað fyrsta hlutann af læknisskoðun sinni hjá Chelsea sem kaupir hann á 30 milljónir punda. (Fabrizio Romano)

Everton hefur áhuga á Matt O'Riley (24) miðjumanni Brighton en óvíst er hvort Brighton sé tilbúið að selja danska landsliðsmanninn. (Sky Sports)

Maurizio Sarri (66) er nálægt því að snúa aftur til Lazio sem stjóri. (Fabrizio Romano)

Simone Inzaghi, stjóri Inter, mun taka ákvörðun fyrir lok miðvikudags hvort hann samþykki tilboð frá Al Hilal um að verða næsti stjóri liðsins. (Rudy Galetti)

Deco, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, segir að félagið sé ekki í leit að framherja eftir að félagið var orðað við Viktor Gyökeres (26). Gyökeres er á lista hjá Arsenal og Man Utd. (A Bola)

Marc-Andre Ter Stegen (33) markmaður Barcelona hefur ekki áhyggjur af stöðu sinni þrátt fyrir að félagið sé orðað við Joan Garcia (24) markmann Espanyol. (Forbes)
Athugasemdir
banner