Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
   sun 01. júní 2025 22:12
Alexander Tonini
Sverrir Páll: Þetta var svona Zlatan mark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög góður sigur hjá okkur strákunum í dag, þrjú mörk, hreint lak, þetta er bara glæsilegt", sagði Sverrir eftir góðan 3-0 útisigur sinna manna á móti ÍA á Skaganum í kvöld.

Sverrir var inntur eftir svörum um það að hafa stigið upp og svarað kallinu í sóknarlínu ÍBV, nú þegar bæði Omar og Oliver eru frá vegna meiðsla.

„Maður reynir alltaf að skora eða leggja upp þegar maður spilar. En fyrst og fremst er mikilvægast að fá þessi þrjú stig í hús. Hvort sem það er ég eða Breki eða Bjarki eða whatever sem skorar mörkin. Það skiptir ekki máli, við fengum þessi þrjú stig"

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 ÍBV

Sverrir Páll Hjaltested skoraði stórbrotið mark í leiknum og eitt það glæsilegasta sem sést hefur í sumar. Eftir að boltinn barst til hans rétt innan við miðlínu sá hann að markvörður ÍA, Árni, var staðsettur langt frá marki sínu. Sverrir lét ekki tækifærið fram hjá sér fara, gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum yfir markvörðinn og beint í netið.

„Ég sá hann aðeins úr stöðu. Svo þegar ég var búinn að hitta í boltann þá fannst mér hann vera að fara að ná þessu en svo endar hann í skeytinni og þeir verja hann ekki þar víst"

„Þetta var svona Zlatan mark, við getum sagt það", bætti Sverrir við að lokum.
Athugasemdir
banner
banner