Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Klárlega einn besti markmaður úrvalsdeildarinnar"
Mynd: EPA
Caoimhin Kelleher, markvörður Liverpool, er nálægt því að ganga til liðs við Brentford.

Hann hefur verið gríðarlega traustur fyrir Liverpool sem varamarkvörður fyrir Alisson en Jake O'Brien, leikmaður Everton og samherji hans í írska landsliðinu, telur að hann sé einn besti markvörður deildarinnar.

„Það vita allir hversu góður hann er og hvað hann hefur afrekað undanfarin ár. Ef þetta gengur eftir er þetta frábært skref fyrir hann, að verða markvörður númer eitt í úrvalsdeildinni. Það er mikilvægt að spila í hverri viku og hann er meira en nógu góður," sagði O'Brien.

„Hann er klárlega einn besti markmaður úrvalsdeildarinnar og ég tel að hann muni sýna á næsta ári að hann sé með þeim bestu."
Athugasemdir
banner