Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 16:39
Haraldur Örn Haraldsson
„Ég hef aldrei æft á svona góðum Laugardalsvelli"
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á morgun fer fram leikur í Þjóðadeild kvenna milli Íslands og Frakklands. Þetta verður fyrsti leikur landsliðsins á nýju grasi en í dag æfði liðið á því. Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði liðsins sat fyrir spurningum á fréttamannafundi sem fór fram í dag.


„Hann er bara geggjaður, bara ótrúlega flottur."  Segir Glódís um völlinn. „Ég hef aldrei æft á svona góðum Laugardalsvelli. Þannig ég held að aðstæðurnar, allavega á grasinu á morgun verða upp á tíu. Þótt það verði kannski ekki ákjósanlegasta veðrið upp á vind og svoleiðis. En eins og Steini segir þá erum við vanari því heldur en þær, þannig það er ekki eitthvað sem við munum vera hugsa alltof mikið út í," sagði Glódís.

Glódís spilar fyrir Bayern Munchen í Þýskalandi og hefur því spilað á mörgum af bestu völlum Evrópu. Hún segir að nýja grasið á Laugardalsvellinum sé í líkingu við þá velli.

„Þetta er bara upp á tíu. Við vorum úti í sendingar æfingu og allar sendingar fóru akkúrat þangað sem maður vildi að þær færu og boltinn rann vel. Maður getur ekki beðið um mikið meira en það held ég."

Þetta er síðasti leikur landsliðsins á heimavelli áður en þær hefja leik á EM í júlí.

„Ekki spurning," Segir Glódís um hvort það sé gott að komast á Laugardalsvöll einu sinni áður en stórmótið byrjar.

„Við erum búnar að bíða lengi eftir því að geta spilað aftur á Laugardalsvelli og það skemmir ekki fyrir að núna er hann upp á tíu, og það er búið að færa hann nær stúkunni. Þannig vonandi verður bara ennþá meiri tenging milli stuðningsmanna og okkar inn á vellinum, vona að sem flestir komi. Þótt að veðrið verði ekki gott að þá ætlum við að reyna að bjóða upp á góðan fótbolta leik."


Athugasemdir
banner
banner
banner