Írski markvörðurinn Caoimhin Kelleher er á leið til Brentford frá Liverpool fyrir 18 milljónir punda. „Here we go!“ segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano og þá stutt í að skiptin verði staðfest af félögunum.
Kelleher er 26 ára gamall og verið varamarkvörður fyrir Alisson síðustu sex ár.
Írinn hefur fengið góða reynslu á tíma sínum hjá Liverpool og alls spilað 67 leiki í öllum keppnum. Hann hefur haldið hreinu í 24 leikjum sínum með félaginu.
Brentford hefur náð samkomulagi við Liverpool um kaup á Kelleher en hann mun kosta félagið 18 milljónir punda með öllu inniföldu og mun hann taka við markvarðarstöðunni af Mark Flekken sem er á leið til Bayer Leverkusen í Þýskalandi.
Gengið verður frá öllum helstu smáatriðum á næstu dögum áður en hann verður kynntur til leiks hjá Brentford.
Kelleher átti mörg góð augnablik í treyju Liverpool. Hann var frábær er Liverpool vann deildabikarinn árið 2022 og á síðasta ári, ásamt því að eiga fullt af flottum leikjum í deildinni. Besti varamarkvörður heims var hann kallaður fyrr á þessu tímabili, en hann vildi fá meiri spiltíma og hefur félagið samþykkt að leyfa honum að fara annað í leit að stærra hlutverki.
Það er nokkuð öruggt að Kelleher er að fara þangað sem aðalmarkvörður og því útlit fyrir að íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Rafn Valdimarsson verði áfram varamarkvörður liðsins á komandi leiktíð.
Liverpool mun ekki þurfa mann í stað Kelleher. Georgíski landsliðsmarkvörðurinn Georgi Mamardashvili gengur formlega í raðir félagsins frá Valencia í sumar og mun veita Alisson samkeppni næstu árin.
?????????? Caoimhin Kelleher to Brentford, here we go! Deal done for the goalkeeper to join from Liverpool on £18m package fee add-ons included.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 1, 2025
Mark Flekken will leave Brentford and join Bayer Leverkusen for €10m ?????????????? pic.twitter.com/uDfhSEoV8U
Athugasemdir