Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 20:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno Fernandes ekki búinn að taka ákvörðun
Mynd: EPA
Framtíð Bruno Fernandes hjá Man Utd er í mikilli óvissu. Sky Sports segir að félagið vilji alls ekki selja hann.

Sádi-arabíska félagið Al-Hilal hefur mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig.

Hann hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð sína en hann mun ræða við fjölskylduna sína áður en hann tekur ákvörðun.

United hefur ekki fengið tilboð frá Al-Hilal en talið er að félagið sé tilbúið að borga 100 milljónir punda fyrir Portúgalann sem er samningsbundinn Man Utd til 2027.
Athugasemdir