Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd ekki fengið tilboð í Fernandes
Mynd: EPA
Sky Sports segir í dag að ekkert tilboð hafi borist Manchester United í portúgalska miðjumanninn Bruno Fernandes og bendir allt til þess að hann verði áfram.

Sádi-arabíska félagið Al Hilal hefur átt í viðræðum við Fernandes og umboðsmenn hans síðustu vikur.

Samkvæmt heimildum Sky hefur Man Utd engan áhuga á að selja Fernandes og vill Ruben Amorim, stjóri félagsins, ólmur halda honum áfram.

Talið er að Man Utd gæti mögulega verið opið fyrir tilboð í Fernandes ef hann tjáir félaginu að hann vilji fara í sumar.

Al Hilal er sagt reiðubúið að leggja fram 100 milljónir punda í Fernandes og greiða honum 200 milljónir punda fyrir þriggja ára samning.

Portúgalinn hefur sjálfur komið með dulin skilaboð á samfélagsmiðlum um mögulega brottför, en heimildarmenn Sky segja hann hins vegar ekki hafa tjáð United það hvort hann sé opinn fyrir öðrum áskorunum eða ekki.

Fernandes, sem er þrítugur, hefur verið langbesti maður United síðustu fimm árin eða síðan hann kom frá Sporting Lisbon. Hann hefur gegnt hlutverki fyrirliða síðustu tvö tímabilin og yrði það mikil blóðtaka fyrir liðið að missa leikmann af þessu kaliberi.
Athugasemdir
banner
banner