Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Frimpong mun valda varnarmönnum miklum vandræðum"
Mynd: Liverpool
Liverpool gekk frá kaupum á Jeremie Frimpong frá Leverkusen á dögunum.

Frimpong er vængbakvörður og kemur til með að leysa Trent Alexander-Arnold af hólmi sem fór til Real Madrid eftir tímabilið.

Nathan Tella, fyrrum leikmaður Southampton og samherji Frimpong hjá Leverkusen, ræddi við Sky Sports um komu Frimpong til Liverpool.

„Hann er einn af þeim sem verður bara betri með hverjum leiknum. Hraðinn er hans helsti kostur, hann mun valda varnarmönnum miklum vandræðum. Hann getur nýtt sér það til að skora og búa til mörk fyrir Liverpool," sagði Tella.
Athugasemdir
banner
banner