Félagaskipti Kevin De Bruyne frá Manchester City til Napoli verða líklega ekki kláruð fyrir landsleikjahléið. Það er Sky á Ítalíu sem greinir frá.
Ítölsku meistararnir eru nálægt samkomulagi við Belgann og var læknisskoðun bókuð í dag. Þessi 33 ára miðjumaður átti að fara í læknisskoðun í dag.
Ítölsku meistararnir eru nálægt samkomulagi við Belgann og var læknisskoðun bókuð í dag. Þessi 33 ára miðjumaður átti að fara í læknisskoðun í dag.
Í gærkvöldi var ekki búið að ganga frá öllum pappírum og De Bruyne heldur því til móts við belgíska landsliðið sem á leiki í undankeppni HM á næstu dögum.
Það er líklegt að ekkert verði af félagaskiptum fyrr en eftir landsleikina.
Belgía mætir Norður-Makedóníu á föstudag og svo Wales eftir viku.
Athugasemdir