Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique: Dembele á að vinna Ballon d'Or
Mynd: EPA
Ousmane Dembele er að mörgum talinn sigurstranglegastur til að vinna Ballon d'Or verðlaunin fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili.

Hann kórónaði tímabilið sitt með magnaðri frammistöðu í úrslitum Meistaradeildarinnar í gær þar sem hann lagði upp tvö mörk í 5-0 sigri gegn Inter.

Luis Enrique, stjóri PSG, er ekki í vafa um það að Dembele eigi að vinna Ballon d'Or.

„Ég myndi gefa Ousmane Dembele Ballon d'Or. Hann varðist og sótti, pressan var góð. Hann á án efa að fá þessi verðlaun. Hann var einstakur í þessum úrslitaleik. Hann gaf þeim ekki svigrúm til að anda," sagði Enrique.
Athugasemdir
banner
banner