Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lyon í viðræðum við Nottingham Forest
Mynd: EPA
Lyon er í viðræðum við Nottingham Forest um kaup á brasilíska miðjumanninum Danilo.

Daily Mail greinir frá því að Forest hafi fengið um 20 milljón punda tilboð í hann.

Danilo ökklabrotnaði eftir aðeins sex mínútna leik í sínum fyrsta leik á síðasta tímabili en kom til baka í janúar og lék 13 leiki. Nottingham Forest átti frábært tímabil en liðið var hársbreidd frá því að komast í Evrópukeppni.

Búist er við því að það verði nóg að gera á bakvið tjöldin hjá Forest í sumar en liðið er sagt á eftir þremur leikmönnum Botafogo.
Athugasemdir
banner
banner