
Íslenska landsliðið mætir Frakklandi á morgun í loka leik Þjóðadeildar kvenna. Þorsteinn Halldórsson þjálfari liðsins og Glódís Perla Viggósdóttir sátu fyrir svörum á fréttamannafundi í dag en þau eru bjartsýn fyrir leikinn.
„Ég myndi segja fyrst og fremst hugrekkið í pressunni okkar," Segir Glódís varðandi það, hvað er hægt að taka úr góðri frammistöðu gegn Noreg í síðasta leik.
„Við vorum ekki að leyfa þeim að ýta okkur allt of neðarlega, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við þorðum að stíga upp í pressu og vorum að gera vel með boltann þegar við náðum að spila framhjá þeirra pressu. Það er það sem við þurfum að gera aftur á móti Frakklandi. Fyrir fram gerum við okkur alveg grein fyrir því að þær verða meira með boltann og það er allt í góðu. En við þurfum að nýta þann tíma þegar við erum með boltann, þá þurfum við að gera vel. Vera sterk á boltann og búa okkur til færi, annaðhvort af því við erum góðar á boltann, eða af því við erum í góðri pressu."
Frakkland er eitt af allra bestu kvenna landsliðum heims og það er ljóst að leikurinn á morgun verður erfiður. Hugarfarið í hópnum er hinsvegar ekki þannig að þær hræðist að mæta þeim.
„Ég myndi klárlega segja að það væri háleitt markmið að vinna en það er bara staðan sem við erum í. Það sem við vitum að við höfum í okkur ef við náum okkar allra besta fram úr okkur sem hóp. Þá höfum við sýnt það að við getum unnið þessa leiki. Það þýðir það að við þurfum að vera á toppi á öllum sviðum í leiknum. Hvort sem það er með bolta, án bolta, föst leikatriði. Við þurfum að láta allt þetta fara með okkur og það er klárlega eitthvað sem við vitum að við getum gert," sagði Glódís.
Síðast þegar Ísland mætti Frakklandi endaði leikurinn í 3-2 tapi. Þorsteinn segir að það sé ýmislegt hægt að taka úr þeim leik.
„Við höfum farið yfir töluvert úr þeim leik og ákveðna hluti í þeirra leik sem við getum nýtt okkur líka. Það mun aðlagast eftir hvernig þær spila. Auðvitað voru hlutir í þeim leik sem voru jákvæðir, það voru líka hlutir sem voru ekki eins góðir. Við getum klárlega unnið út frá einhverjum hlutum, fundið út hvernig þær voru að spila og hvernig þær voru að pressa. Þetta hefur verið gegnum gangandi í öllum leikjunum hjá þeim á þessu ári, að megninu til mjög svipað, svipaðar áherslur. Við vitum hvað við erum að fara út í, svo snýst þetta bara um hvernig þær bregðast við."