Ousmane Dembélé, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, er besti leikmaður tímabilsins í Meistaradeild Evrópu. Liðsfélagi hans, Désiré Doué, var valinn efnilegastur af UEFA, fótboltasambandi Evrópu, í dag.
Dembéle átti sitt besta tímabil á ferlinum til þessa og er nú talinn líklegastur til að hreppa Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu í september.
Hann skoraði 6 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 15 leikjum sínum með PSG í Meistaradeildinni, en hann átti tvær af þessum stoðsendingum í 5-0 stórsigrinum á Inter í úrslitaleiknum á Allianz-leikvanginum í München í gær.
UEFA hefur valið hann besta leikmann tímabilsins í Meistaradeildinni og var Doué um leið valinn efnilegasti leikmaðurinn.
Doué, sem er 19 ára gamall, skoraði 5 mörk og gaf 4 stoðsendingar í keppninni á tímabilinu og átti bestu frammistöðu sína einmitt í leiknum í gær.
Hann skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu í leiknum og var í kjölfarið valinn besti maður leiksins.
Gersamlega stórkostlegt tímabil hjá þessum tveimur og öllum í PSG-liðinu sem var að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
???? UEFA Champions League Player of the Season: Ousmane Dembélé! ????#UCL | @PSG_inside pic.twitter.com/1BQFl4Ficf
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) June 1, 2025
???? Désiré Doué named 2024/25 UEFA Champions League Young Player of the Season ????#UCL | @PSG_inside pic.twitter.com/WiKBQvPkzb
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) June 1, 2025
Athugasemdir