Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 14:09
Brynjar Ingi Erluson
Kolbeinn skoraði tvö og Gautaborg áfram á sigurbraut - Daníel lagði upp í sigri Malmö
Kolbeinn er með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum
Kolbeinn er með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Kolbeinn Þórðarson
Kolbeinn Þórðarson
Mynd: Guðmundur Svansson
Daníel Tristan lagði upp fyrir Malmö
Daníel Tristan lagði upp fyrir Malmö
Mynd: Malmö
Gísli Eyjólfs byrjaði í sigri Halmstad
Gísli Eyjólfs byrjaði í sigri Halmstad
Mynd: Halmstad
Kolbeinn Þórðarson hefur verið í ham síðan hann kom úr leikbanni en hann var hetja Gautaborgar annan leikinn í röð er liðið vann 3-1 sigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Blikinn skoraði tvö mörk í sigrinum. Hann skoraði með skalla eftir aukaspyrnu Tobias Heintz á 24. mínútu og bætti við öðru marki undir lok hálfleiksins með því að pota boltanum yfir línuna eftir skallasendingu Eman Markovic.





Kolbeinn fór af velli í hálfleik en í þeim síðari tókst Brommapojkarna að minnka muninn áður en Sebastian Clemmensen gulltryggði sigurinn.

Frábæra frammistaða hjá Kolbeini sem skoraði einnig sigurmark liðsins í 1-0 sigrinum á Malmö í síðustu umferð. Gautaborg er í 6. sæti með 19 stig eftir tólf leiki.

Hlynur Freyr Karlsson var á bekknum hjá Brommapojkarna en kom ekkert við sögu. Brommapojkarna eru í 14. sæti með 10 stig.

Daníel Tristan Guðjonsen var í byrjunarliði Malmö og lagði upp annað mark liðsins í 3-0 sigri á bikarmeisturum Häcken.

Framherjinn átt sendingu sem fór af varnarmanni og á hinn 18 ára gamla Kenan Busuladzic sem skoraði.



Arnór Sigurðsson var ekki með Malmö í dag vegna meiðsla, en liðið er í 5. sæti með 22 stig.

Gísli Eyjólfsson byrjaði hjá Halmstad sem vann 1-0 sigur á Djurgården. Birnir Snær Ingason var ekki með Halmstad í leiknum.

Halmstad er í 12. sæti með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner