Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 16:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KA og Stjörnunnar: Hetjan byrjar en Viðar ekki í hóp - Þrjár breytingar hjá gestunum
Jóan Símun skoraði sigurmarkið gegn Fram.
Jóan Símun skoraði sigurmarkið gegn Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar ekki með.
Viðar ekki með.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar ekki með í dag.
Örvar ekki með í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:00 á Greifavellinum hefst leikur KA og Stjörnunnar í tíundu umferð Bestu deildarinnar. Byrjunarlið liðanna hafa verið opinberuð og má sjá þau hér að neðan.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 1-2 útisigrinum gegn Fram á fimmtudag. Rodri og Hrannar Björn taka sér sæti á bekknum og inn í þeirra stað koma þeir Guðjón Ernir og hetjan úr síðasta leik, Jóan Símun. William Tönning er áfram í markinu en athygli vekur að Viðar Örn Kjartansson er ekki í hópnum. Inn í hópinn kemur Sigurður Nói Jóhannsson sem fæddur er árið 2010.

Lestu um leikinn: KA 1 -  1 Stjarnan

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn KR á fimmtudagskvöld. Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði liðsins, er ekki í hópnum vegna meiðsla. Þeir Örvar Eggertsson og Daníel Finns Matthíasson eru heldur ekki með. Inn í liðið koma þeir Kjartan Már Kjartansson, sem var í banni í síðasta leik, Haukur Örn Brink og Jóhann Árni Gunnarsson. Guðmundur Baldvin Nökkvason og Sigurður Gunnar Jónsson koma inn í hópinn frá síðasta leik.

Byrjunarlið KA:
12. William Tönning (m)
2. Birgir Baldvinsson
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Jóan Símun Edmundsson
8. Marcel Ibsen Römer
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Jakob Snær Árnason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
77. Bjarni Aðalsteinsson

Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
22. Emil Atlason (f)
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
30. Kjartan Már Kjartansson
32. Örvar Logi Örvarsson
37. Haukur Örn Brink
Athugasemdir
banner
banner