Nú stendur yfir leikur FH og Aftureldingar í Bestu deild karla en FH-ingar leika í nýjum ljósbláum treyjum þar sem um er að ræða sérstakan styrktarleik.
„Sá fagurblái er mættur. Í ár stöndum við saman með Gleym mér ei styrktarfélag. Lestur: Ebba Katrín Finnsdóttir. Lag: Friðrik Dór" segir á heimasvæði FH á Facebook þar sem frumsýnt er myndband sem sjá má hér að neðan.
Gleym mér ei styrktarfélag er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. FH-ingar hafa á hverju ári lagt góðum málefnum lið og gefið út sérstakar styrktartreyjur. Treyjan í ár er fagurblá og glæsileg.

Sá fagurblái er mættur ????
— FHingar (@fhingar) June 1, 2025
Í ár stöndum við saman með Gleym mér ei styrktarfélag!
Lestur: Ebba Katrín Finnsdóttir
Lag: Friðrik Dór pic.twitter.com/wdI4RXdtPv
Athugasemdir