Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 11:03
Brynjar Ingi Erluson
Tveir látnir og 192 særðir eftir sigur PSG í Meistaradeildinni
Mynd: EPA
Tveir eru látnir og 192 særðir eftir að Paris Saint-Germain vann Meistaradeild Evrópu í gær en þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu.

PSG varð Evrópumeistari í fyrsta sinn í sögunni er liðið slátraði Inter, 5-0, á Allianz-leikvanginum í München í gær.

Þetta var aðeins í annað sinn sem franskt lið vinnur keppnina á eftir mögnuðu sigurliði Marseille frá 1993.

Mikil fagnaðarlæti brutust út víða um Frakkland sem leiddust út í óeirðir.

Í tilkynningu innanríkisráðuneytisins kemur fram að lögreglan hafi handtekið 559 manns, þar af 491 manns í París. Tveir létu lífið og 192 særðust.

Samkvæmt skýrslu lögreglu lést 17 ára drengur eftir að hafa verið stunginn í bringuna í bænum Dax og þá dó 23 ára karlmaður í umferðarslysi í miðborg París.

Stuðningsmenn PSG skutu flugeldum og blysum víða um Frakkland, en mörg myndbönd hafa verið birt af fagnaðarlátunum sem snérust upp í óeirðir. Kveikt var í bílum, rúður brotnar í verslunarklösum og mikið um slagsmál á götum Parísar.



Athugasemdir
banner
banner