Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   sun 01. júní 2025 17:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sævar Atli kallaður inn í landsliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar Atli Magnússon, nýr leikmaður Brann, hefur verið kallaður inn í A-landsliðshópinn sem mætir Skotlandi og Norður-Írlandi 6. og 10. júní í vináttuleikjum.

Hann kemur inn í hópinn fyrir Arnór Sigurðsson sem getur ekki tekið þátt í leikjunum vegna meiðsla.

Sævar Atli samdi við Brann á dögunum en hann gekk til liðs við félagið frá Lyngby en samningurinn gildir frá 1. júlí.

Sævar Atli á fimm A-landsleiki að baki.
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Athugasemdir
banner