Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
Bjarni mjög ánægður hjá Val - „Var mjög hreinskilinn að ég væri ekki að fara neitt"
Túfa aldrei hugsað um töfluna - „Mikilvægast að halda stöðugleika"
Rúnar tekur tapið á sig - „Stundum er þetta bara þjálfaranum að kenna frekar en leikmönnum"
Guðný: Þetta lítur ótrúlega vel út
Sandra María: Góða íslenska veðrið vinnur með okkur
„Skrítið ef ég stæði hérna og segði að við ættum ekki möguleika"
Hildur Antons: Spenntar að fá að vígja grasið
Vicente: Við Alex ræddum þetta fyrir leik
Ingvar Jóns heiðarlegur: Höfum ekkert verið frábærir í sumar
Láki: Þetta mun rúlla bara þessa fríviku
Anton Logi spilaði miðvörð: Forréttindi að spila með Viktori
Víkingar komu Dóra gríðarlega á óvart - „Hentaði ekki vel á móti okkur"
Sölvi svekktur: Veit ekki hvað ég á að segja
Sverrir Páll: Þetta var svona Zlatan mark
Maggi Már: Jú jú, ef Heimir vill meina það
Heimir: Þeir gerðu vel í að hægja á tempói og drepa leikinn
Jökull: Get ekki betur séð en að dómararnir láti það hafa áhrif á sig
Haddi: Ef það er rétt sem þú segir þá því miður var það vitlaus ákvörðun
Ívar Örn: Þeir missa þetta upp í sína eigin vitleysu
Samúel viðurkennir hendina - „Veit ekki hvernig reglan er"
   sun 01. júní 2025 14:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bergen
Formaður stuðningsklúbbsins: Mikið af fólki varð skotið í Freysa
Erlend Vågane, formaður stuðningsmannaklúbbs Brann.
Erlend Vågane, formaður stuðningsmannaklúbbs Brann.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: Fótbolti.net - Valur Gunnarsson
Núna klukkan 15:00 hefst leikur Brann og Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni. Þetta er mikilvægur leikur fyrir Íslendingalið Brann í toppbaráttunni.

Fótbolti.net er í Bergen og ræddi fyrir leikinn við formann stuðningsmannaklúbbs, Brann, Erlend Vågane, um stöðu mála. Hann segir Frey Alexandersson, þjálfara liðsins, vinsælan á meðal stuðningsmanna félagsins.

„Hvað varðar samskipti og hvernig hann talar til fjölmiðla og stuðningsmanna, þá er það fullkomið," segir Vågane við Fótbolta.net.

„Ég held að mikið af fólki hafi orðið skotið í honum þegar hann talaði fyrst við fjölmiðla. Hann kom frábærlega fyrir og er frábær í samskiptum. Að lokum verður hann dæmdur af úrslitum og hvernig hann spilar. Það hefur líka verið gott, en það er möguleiki til að gera meira. Heilt yfir hefur þetta verið mjög gott og flestir kunna mjög vel við Frey."

Það er alltaf draumurinn fyrir stuðningsmenn Brann, sem margir hverjir gjörsamlega brenna fyrir félagið, að gullið komið komi heim og Freyr er vonandi þjálfarinn sem gerir það. Síðast varð Brann norskur meistari árið 2007.

„Við erum stærsta félagið í Noregi í dag hvað varðar stuðningsmenn og áhuga, en við höfum ekki unnið mikið. Við unnum síðast 2007 og þar áður liðu 44 ár á milli. Við erum ekki vön því að vinna en það er alltaf draumurinn," sagði Vågane og bætti svo við síðar í viðtalinu:

„Ég held að flestir elski Frey og þrái það að hann nái góðum árangri. Að vinna með þjálfara eins og Frey væri draumur."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner