Nottingham Forest er samkvæmt heimildum Sky Sports í viðræðum við brasilíska félagið Botafogo um kaup á þremur leikmönnum.
Framherjinn Igor Jesus, vinstri bakvörðurinn Cuiabano og miðvörðurinn Jair Cunha eru á óskalista Forest.
Jesus er einn mesti framherji í Suður-Ameríku en hann er 24 ára gamall. Cuiabano er 22 ára og kom til Botafogo frá Gremio í fyrra.

Cunha er þá U20 landsliðsmaður Brasilíu.
Í forgangi hjá Forest, sem átti gott tímabil en rétt missti af Meistaradeildarsæti og verður í Sambandsdeildinni á komandi tímabili, er nýr vinstri bakörður, miðjumaður, vængmaður og framherji samkvæmt heimildum Sky Sports
Athugasemdir