Inter er í viðræðum við umboðsmann Rasmus Höjlund en danski framherjinn hefur ekki náð að sanna sig hjá Man Utd.
Höjlund gekk til liðs við Man Utd frá Atalanta árið 2023 og hefur skorað 26 mörk í 94 leikjum fyrir United en þar af hafa 14 þeirra komið í ensku úrvalsdeildinni.
Man Utd borgaði 72 milljónir punda fyrir hann.
Síðasta tímabil var mikil vonbrigði fyrir Inter en liðið var í góðri stöðu í deildinni áður en Napoli komst á toppinn og vann deildina að lokum. Þá komst liðið í úrslit Meistaradeildarinnar en steinlá gegn PSG.
Athugasemdir