Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 17:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atlarnir komu frábærlega inn hjá KR - „Litla frammistaðan"
Atli Hrafn var frábær eftir að hann kom inn á.
Atli Hrafn var frábær eftir að hann kom inn á.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli SIgurjónsson kom einnig mjög vel inn.
Atli SIgurjónsson kom einnig mjög vel inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Hrafn Andrason og Atli Sigurjónsson hjálpuðu KR-ingum að skora tvö mörk á lokakafla leiksins gegn Vestra og dugðu þau mörk til að fara með sigur af hólmi.

Atli Hrafn skoraði og lagði upp og Atli Sigurjóns lagði upp markið á Atla Hrafn og átti næst síðustu sendiguna í markinu sem Atli Hrafn lagði upp.

Þeir fengu hrós í viðtölum eftir leikinn í gær.

Lestu um leikinn: KR 2 -  1 Vestri

„Geggjaðir báðir tveir, sérstaklega Atli Hrafn sem hefur spilað lítið. Hann hefur haldið haus, mætt á allar æfingar, barist eins og hundur og það skilaði sér í dag, bara geggjað," sagði Aron Þórður Albertsson. miðjumaður KR, við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Það er rosa­legt að við átt­um Atla Hrafn inni, litla frammistaðan hjá hon­um. Hann er geggjaður karakt­er og mik­ill KR-ing­ur. Ég er svo ánægður fyr­ir hans hönd að koma inn og klára þetta svona," sagði Eiður Gauti Sæbjörnsson, framherji KR, í viðtali við mbl.is eftir leikinn. Eiður Gauti og Atli Hrafn voru samherjar hjá HK í fyrra.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í skiptingarnar í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Það er auðvitað bara mjög mikilvægt fyrir okkur. Atli Sigurjónsson átti náttúrulega ekki að spila þennan leik og er hálfmeiddur, en einhvern vegin þvingaði hann sig inn í hópinn í gær. Það er sérstaklega mikilvægt að fá framlag frá sem flestum því við erum með níu menn á meiðslalista og hvert auka njúton sem við fáum frá mönnum telur og það taldi svo sannarlega."

Atli Hrafn var í gær að koma inn á í sínum öðrum leik í sumar fyrir KR, en fyrsti leikurinn var gegn Stjörnunni á fimmtudag. Anton Freyr Jónsson valdi Atla Hrafn besta mann vallarins í skýrslunni eftir leikinn.

Óskar Hrafn hrósaði Vestra - „Held að þeir geti beðið lengi og orðið gráhærðir og skeggjaðir á meðan"
Aron Þórður: Fótboltinn vann í dag
Athugasemdir
banner
banner