Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Doue að fara illa með Inter
Mynd: EPA
PSG hefur náð tveggja marka forystu í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Inter í Munchen.

Achraf Hakimi kom PSG yfiir gegn sínum gömlu félögum á 12. mínútu og PSG var komið í 2-0 eftir 20. mínútna leik.

Hinn 19 ára gamli Desire Doue lagði upp fyrra markið og hann gerði sér lítið fyrir og skoraði seinna markið eftir vel útfærða skyndisókn.

Denzel Dumfries tók langt innkast en Inter náði ekki að gera sér mat úr því. PSG kom boltanum frá og boltinn endaði hjá Doue sem átti skot sem fór af Federico Dimarco og í netið.

Sjáðu markið hér

Athugasemdir
banner