Rætt var um Kylian Mbappe í Meistaradeildarmörkunum á Stöð 2 Sport eftir úrslitaleikinn í kvöld. Mbappe tókst ekki að vinna Meistaradeildina með PSG og fór til Real Madrid en þá vann PSG loksins keppnina.
Arnar Gunnlaugsson og Albert Brynjar Ingason tjáðu sig um mögulelgar tilfinningar Mbappe við sigri PSG í kvöld.
„Hann átti fínasta tímabil með Madrid. Hann er fókuseraður á sitt verkefni. Hann er Parísarbúi og frekar samgleðst þeim en hitt," sagði Arnar.
„Ég held ekki. Þessi gæji er með svo stórt egó. Þeir fá vinnuframlag frá mörgum leikmönnum og vinna þetta loksins. Hann var nú samt 44 marka maður á tímabilinu í fyrra. Ég held að hann sé öfundsjúkur. Hann fór til Real og hugsaði að hann væri að fara vinna þetta í ár," sagði Albert.
Mbappe sendi PSG kveðju og óskaði þeim til hamingju með titilinn. „Það er loksins komið að þessu. Til hamingju PSG," skrifaði Mbappe.
Luis Enrique tókst ekki að sannfæra Mbappe um að verða viinnusamari fyrir liðið en Ousmane Dembele og Khvicha Kvaratskhelia hafa verið frábærir á báðum endum vallarins.
Not long ago, Luis Enrique was trying to convince Mbappe of the importance of defending for the team.
— herculez gomez (@herculezg) May 31, 2025
Now, it's Dembélé who is making strides and is a legitimate Ballon d'Or candidate, on the verge of lifting his first Champions League trophy. #UCL
pic.twitter.com/rtk8mcKiAl
Kylian Mbappé congratulates PSG. pic.twitter.com/L2Cs1iI6d1
— Madrid Xtra (@MadridXtra) May 31, 2025
Athugasemdir