PSG nældi í sinn fyrsta Meistaradeildartitil í kvöld þegar liðið rúllaði yfir Inter í Munchen.
Hinn 19 ára gamli Desire Doue var maður leiksins en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Vitinha var hins vegar stórkostlegur á miðjunni.
Hinn 19 ára gamli Desire Doue var maður leiksins en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Vitinha var hins vegar stórkostlegur á miðjunni.
Vitinha fór á lán til Wolves í úrvalsdeildina frá Porto árið 2020 en spilaði aðeins 19 leiki í úrvalsdeildinni tímabilið 2020/21 og var í miklum vandræðum.
Þrátt fyrir það var hann keyptur til PSG árið 2022 og hann hefur blómstrað þar og sýndi sínar bestu hliðar í kvöld á stærsta sviðinu.
„Þetta er draumurinn minn, okkar draumur, alveg magnað," sagði Vitinha eftir leikinn í kvöld.
Athugasemdir