Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   lau 31. maí 2025 22:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn PSG minntust dóttur Enrique - „Er alltaf með okkur"
Mynd: EPA
Það var tilfinningaþrungin stund þegar PSG vann Inter í úrslitum Meistaradeildarinnar í Munchen í kvöld.

Þetta var fyrsti Meistaradeildartitill PSG en Luis Enrique vann titilinn einnig með Barcelona á sínum tíma.

Dóttir Enrique lést eftir baráttu við krabbamein árið 2019 en Enrique talaði opinskátt um hana í aðdraganda leiksins. Um það leiti sem bikarinn fór á loft drógu stuðningsmenn PSG fram borða með mynd af Enrique og dóttur hans.

„Þetta hefur miikla þýðingu fyrir miig. Ég þarf hins vegar ekki að vinna Meistaradeildina til að minnast dóttur minnar. Hún er alltaf með okkur, sérstaklega þegar við töpum," sagði Enrique.

Þá var Enrique sjálfur í bol með mynd af dóttur sinni en bæði borðinn og bolurinn sýndi hana flagga PSG fána en það er tilvísun í mynd af henni ásamt pabba sínum að flagga Barcelona fána á sínum tíma.




Athugasemdir
banner
banner
banner